Í Eyrarkoti er aðstaða fyrir tíu manns í gistingu í þremur tveggja manna herbergum og einu fjögura manna herbergi. Húsið er tilvalið fyrir smærri hópa og einstaklinga sem vilja komast í friðsæld, ró og sveitastemningu. Í húsinu er góð aðstaða til eldunar ásamt rúmgóðri borðstofu og setustofu, góðum rúmum og baðherbergi með sturtu.