|
Við Eyrarkot er salur sem rúmar allt að 50 manns í sætum. Þar er salernisaðstaða og móttökuherbergi. Góður pallur er við húsið með garðhúsgögnum og grilli. Salurinn hentar mjög vel fyrir afmæli, ættarmót, listsýningar, fyrirlestra, vinnuhópa og kennslu. Hentugt er að leigja salinn með gistingu í Eyrarkoti. Hægt er panta máltíðir og morgunmat fyrir hópa og einstaklinga.
Nánari upplýsingar og gistipantanir
eru í síma 6923025 og í netfanginu begga@emax.is
|