Map
samansafn

Samansafnið á Kiðafelli 

Á fjósloftinu á Kiðafelli hefur verið komið fyrir fjöbreyttu safni gamalla muna í viðeigandi umhverfi.

Heiti þess er Samansafnið á Kiðafelli. Þar má m.a. skoða gamlar búvélar,stríðsminjar, sjávar- og landbúnaðarminjar, ásamt fjölmörgu öðru sem haldið hefur verið til haga frá liðnum tímum. Allir ættu að koma auga á eitthvað áhugavert í safninu og þar eru margir hlutir sem koma gestum skemmtilega á óvart, frá ýmsum tímabilum, svo sem einn elsti ísskápur landsins, áfengisbók fyrir karla frá skömmtunar-árunum og hvalskurðarhnífur Halldórs Blöndals. Þar er einnig sérstakt svæði með munum frá stríðsárunum.

Samansafnið er opið eftir samkomulagi og er hægt að panta tíma hjá Sigurbirni í síma 896 6984 og Bergþóru í síma 692 3025.

Eyrarkot - Kjós - +354 -6923025 -begga@emax.is